Leikur dagsins

Auglýsing

Leit

Könnun

Hvađ er mest "inn" ???

Dararí.. :D

20. desember 2006 klukkan 20:41
Jæja góðir hálsar, bara svona minna ykkur á það að jólin eru á leiðinni, ekki gleyma þeim...   

                                           Til hamingju með ógeðslegt veður og rauð jól allir landsmenn.....!!!



Jón Ţór Sigurđarson

Síţreyta dauđans..

09. nóvember 2006 klukkan 04:36
Jæja góðir hálsar...

Loksins loksins loksins ætla ég mér að hreypa eitthvað nýtt niður á skjáinn hérna.   Ykkur til mikillar ánægju og yndisauka vonandi :D

það er svona helst að frétta að ég er að plumma mig ágætlega hérna í borg óttans.
Er orðinn hæstvirtur kaffibarþjónn á Nýju Kaffibrennsluni við Austurvöll. Þannig að ef ykkur þyrstir í einstaklega góðan og gildan sopa, endilega reka nefið hingað inn og njóta vel. :)

Það er samt svo andskoti langt síðan að ég bloggaði seinast, mér líður eiginlega hálf kjánalega að skrifa eitthvað hérna, er alveg hættur að kunna þetta liggur við.
Er mikið að vinna í músíkinni núna líka, þetta er allt að smella saman, er umvafinn snillingum sem hafa tekið mig upp á sína arma, og eru svona leiðbeina mér eins vel og þeir geta, og gengur svona upp og ofan, en tussast engu að síður.  :)

Ég veit eiginlega ekki aleg hvað ég á að skrifa hérna, hehehehe    ég er bara búinn að vera að vinna út í eitt, og stunda fundi, sofa (lítið), éta grænmeti og dansa þess á milli. :P

                                         Jaaaaaaááááá........      geisp, er voðalega andlaus núna. Finn að ég er alveg að fara að ausa úr skálum skinvillu minnar og veitleysisgans hérna, þannig að ég er að spá í að hafa þetta ekki öllu lengra í bili.....

langar að heyra frá ykkur öllum, comment, comment, comment..................    


                                                                       Adios, kaffe kaffe....       

                                                                                       Kv. Jón Óðalsbóndi og bústólpi.
Jón Ţór Sigurđarson

Ţetta er mađurinn....

14. október 2006 klukkan 22:36
Ég er æði....
Jón Ţór Sigurđarson

Jólakrapp.....

14. október 2006 klukkan 18:41
Jæja, þá eru blessuð jólin að ganga í garð....   aðeins 71 dagar til Jóla.  Mikið hlakka ég til   (af hverju ætli það sé skilda að skrifa Jól með stórum staf?)

Fínasti dagur það se búið er af honum, er bara búinn að hanga á rassgatinu og gera ekki hund.      Kaffidrykkja í ómældu magni og mikið að gera í dag, 2fundir eftir í dag, og ég hlakka alveg til þess að fara á þá.

Svo á að fara að sýna sveitavarginn á einhverju af fjölmörgum veitiginahúsum bæjarins í kvöld held ég. Þannig er nefnilega mál með vexti að ástæk móðir mín átti afmæli í gær, og ég ákvað að gefi henni þá afmælisgjöf að hún fengi að vera í návist minni þessa helgi.
Hún er rosalega þakklát og er búinn að þrýfa alla íbúðina eins og hún leggur sig....     en mamma....     ég elska þig og til hamingju með afmælið góða   :D


Well, er að fara að skella mér í bæinn að horfa á fólk og drekka kaffi eins og mér er einum lagið, aldrei að vita að ef ég verð góður, þá sé ég kannski strumpunum bregða fyrir....

                                                            Hreiti kannski meira í ykkur með kvöldinu...

                                                                                             Adios.
Jón Ţór Sigurđarson

Mangómannaskítsmongólíti.....

14. október 2006 klukkan 00:14

Jæja.....

Góður dagur......

Ég er búinn að finna upp tímavél sem að mun bera mig á vit ævintýrana og hverja í einhverja stund......
Ég fann hana þegar að ég var að af-homma Gunnar í krossinum í gær, hann var búinn að fela hana undir borði og ég stakk henni í vasann þegar hann var að smyrja sig í smjörlíki áður en ég gat hafist handa við að særa úr honum samkynhneigðina......


Kallinn er bara nokkuð sperrtur,

              Mér er samt orðið alveg mein-illa við listaspýrur, þetta eru bara niðursetningar og endar í íslensku þjóðfélgai. Lifa á lúsalágum styrkjum frá ríkinu, og nota hann til þess að kaupa sér drum og hanga á kaffihúsum, og svo heldur þetta helvítis pakk að það sé yfir mann hafið af því að það þekkir súrrealíska franska kollega sína og hlusti á tónlist sem að minnir mest á samblöndu af Búrhvalahægðum og pokarottu með brundfyllisgremju.....!!!!


                                         Lífið er samt alveg ágætt fyrir utan allt þetta....

                                                                 Fundir í dag....      hlakka til að fara að éta á Hlölla.... 


                                                                                                                        Fnæs...!!!!!!!
Jón Ţór Sigurđarson

Góđan daginn

10. október 2006 klukkan 15:27
Halló heimur...   :D

Mikið er nú gaman að vera til, og djöfull er það gott að vera laus við það að eltast við áfengi fram eftir öllu allar helgar   :D

Er núna í borg óttans og er að fíla mig ágætlega, mikið af fundum sem hægt er að sækja hérna, og ég er alveg að tækla þetta á fullu þessa dagana, og er mikið bara að hrærast í þessu A.A. batteríi öllu saman og kann bara rosalega vel við mig hérna og það er allsstaðar tekið vel á móti manni.

Ég er bara á fullu að reyna að finna mér vinnu þessa dagana, og ef að þið þarna úti vitið af einhverju sem er nokkurn veginn sniðið fyrir svona ótrúlega snjallan og magnaðan starfskraft eins og mig megið þið endilega senda mér línu eða hringja bara.   :D

En ég hef ekkert mikið að segja þrátt fyrir allt, mér líður bara rosalega vel, og er bara svona að einbeita mér að því að viðhalda því þessa dagana.

Tíminn á Staðarfelli var alveg rosalega fljótur að líða, og þar synti ég með glæpamönnum og fyllubyttum í sjónum, sá Haferni og elti kindur upp í kletta. Alveg magnað að koma þarna og vera í heila meðferð, og þvílíkt sem að maður nær að meðtaka þarna á ekki fleiri dögum, segi nú samt ekki að mig hafi ekki verið farið að langa að komast heim eftir 3vikur, en kallinn harkaði af sér, saug upp í nefið, þurrkaði í ermina og hélt áfram og hér er ég að springa úr vellíðan og ánægju.


En ég ætla nú að fara að hætta að dásama sjálfan mig.....    hahahaha


                          Ég er bara rosalega ánægður með þaðað vera kominn til baka, og hlakka til þess að sjá sem flesta í framtíðinni, og endilega látið heyra í ykkur hér eða annarsstaðar.
Jón Ţór Sigurđarson

Heill og sćll

30. ágúst 2006 klukkan 21:24

Jæja,   Þá er fríið búið.....

Er búinn að hafa það frekar gott hérna í sveitarsælunni......    er að fara suður á morgun og svo fer ég á Staðarfell á föstudagsmorguninn og ætla að dvelja þar næstu vikur í eftirmeðferð.

Vildi bara þakka stuðninginn og hafið það bara sem allra best....    


Hlakka til að sjá ykkur öll að nýju og bið bara að heilsa í bili (hef ekkert sniðugt að segja nema kannski að ég er ógeðslega skemmtilegur og ási er myndarlegur)


Take care... 


                                       .....þangað til næst   :)

Jón Ţór Sigurđarson

Nýr og bćttur Jóndi v2.1

26. ágúst 2006 klukkan 00:05
Heil og sæl. 

Og já ég veit hvað þið hafið verið að hugsa, "hvar skyldi Jóndi vera? og hvenær fáum við að njóta þess að vera í nærveru hans eða allavegana að fá að vita hvað hann er að hugsa og velta fyrir sér, hvenær bloggar hann næst?"

Og skýringin er auðveld, 


GÓÐIR HÁLSAR, nú munið þið fá að kynnast nýrri og enn betri útgáfu af Jóni Frá Jaðri, tjaaaalllinnn skellti sér í áfengismeðferð og hef ákveðið að segja bless og á brott með bakkus sem að ég hef átt vingott við seinustu ár, og nýjum manni fylgir nýr lífsstíll og nýtt look, þannig að HOLD YOUR HORSES!!!!! 

Ég er staddur í borg óttans as we speak, og er á leið heim, kom út af Vogi núna seinni partinn, og fer í aðalmeðferð á Staðarfelli í næstu viku   :)

Hlakka mikið til að sjá ykkur öll, og vonandi sé ég ykkur sem flest áður en ég fer á Staðarfell.....


Vona að þið hafið það bara sem allra best.....

Adios og kveðjur             Jón frá Jaðri      :D
Jón Ţór Sigurđarson

Vííííúúúú

05. ágúst 2006 klukkan 21:07
Versló er mætt, og ég er í þann mund að fara að taka tappann úr og hend´onum....      verið sæl.......




               P.s.     ég jóðla til að gleyma.....
Jón Ţór Sigurđarson

Jahó...

01. ágúst 2006 klukkan 00:06
Góðan daginn, ég hef tekið þá afdrifaríku ákvörðun að hætta að blogga í 3. pers. og reyna að fara að haga mér nokkurvegin eins og maður,
ég var farinn að lenda í ákveðnu einelti fyrir þetta og vill ég þakka þeim sem að höfðu öfgafullar skoðanir á ruglinu í mér hérna kærlega fyrir ótímabærar símhringar, stunur og önnur búkhljóð í talhólfinu mínu og hótanir um limlestingar og líflát í skilaboðunum til mín hérna á www.bloggar.is    :D

Annars er bara lítið að frétta, er bara búinn að vera að vinna eins og hestur undanfarna daga, og er í langþráðu frí þessa dagana,
Er að fara í asnalega aumingjaaðgerð á öxlinni og kvíðir frekar mikið fyrir, vegna þess að ég er ekki með eitthvað "skurðhnífa og sprautu- fetish" síður en svo....

Allt með kyrrum kjörum samt.        Verslunarmannahelgin framundan, og ég sé ekki fram á að gera neitt af viti þannig séð, bara að hanga heima ef að ég verð ekki farinn að vinna aftur. Spáð einhverri manndráps hæð yfir landinu með tilheyrandi hlýindum á norðulandi og ég kem til með að missa af öllu djammi og einhverju sem að í versta falli gæti talist skemmtilegt.

Á svona dögum eins og spáð er komandi um næstu helgi á maður að taka tappann úr flöskunni og henda honum, og ekki að hætta fyrr en maður er búinn að æla í hárið á sér, og kominn með hlandblett framan á buxurnar.....   Þá fyrst er kominn tími til þess að hugsa um að hringja heim og segja gömlu konunni að hafa matinn tilbúinn og láta renna í baðkarið vegna þess að maður sé að koma heim.

En allavegana......    hlakka mikið til þessa ð fara út, er alveg með samdráttarverki í brisinu af tilhlökkun.....    

En ég bið bara að heilsa í bili.....       farið varlega í umferðinni um komandi helgi, og ef svo villdi til að þið væruð að leggja leið ykkar norðu í land, ekki vera feimin við að láta vita...   

            já og svo ætla ég að bæta upp fyrir ömurlegan fyrri part hérna seinast    (ofstuðlun er ekki alveg að falla í góðan jarðveg hjá öllum)

                  
                                           Og hann hljóðar svo...  


                                                                                         Gekk ég inn á gamla konu,
                                                                                         gettu hvað ég hugsaði þá.
                                                                
Jón Ţór Sigurđarson